+354 888 4537 adalgler@adalgler.is

Upplýsingar

Um þrenns konar prófíla er að ræða glerjunarprófíl ,stýriprófíl og drenbraut. Prófílarnir eru framleiddir úr besta fáanlega áli. Þeir eru framleiddir eftir ISO og DIN stöðlum sem þýðir að prófílarnir eru tæringarfríir. Neðri prófíll er með drenbraut sem safnar öllu vatni í sig og hleypir því í gegnum profílin og út svo það safnist ekki fyrir.

Hjólabúnaðurinn er eitt af aðalsmerkjum Vizyon glerbrautarkerfisins frá Aðalgler en hjólalegurnar gera glerbrautarkerfið mjög auðvelt í notkun . Hjólalegurnar eru framleiddar úr POM plast efni sem er
viðhaldsfrítt efni. Legurnar virka í frosti jafnt sem hita og þola yfir hálft tonn í þunga áður en þær fara gefa sig.

Barnalæsing er staðalbúnaður á VBS og VDS kerfunum frá Aðalgleri.

PVC-H þéttilistar eru settir á milli fleka til að koma í vegfyrir að t.d vatn vindur og snjór berist inn. Bursti er settur á bæði neðri og efri prófíla að innan og utanverðu til að þétta og koma í veg fyrir að vatn og önnur óhreinindi berist inn.

VBS kerfið býður upp á 8 eða 10 mm hert gler  . Sterkasta gerð glers er hert gler. Hert gler er einkum ætlað óskum viðskiptavina þar sem þörf er á styrk. Það er ákjósanlegt í svalalokanir , glerhurðir, sturtuklefa , stigahandrið, verslanir, skilrúm, afgreiðsluborð, sýningarskápa, innréttingar, o.m.fl. Hert öryggisgler er alltaf sett í glerbrautarkerfið , en það er hægt að velja um að hafa eingöngu hert gler eða hert gler með filmu á milli. Glerið kemur frá viðurkenndum aðila og er framleitt eftir öllum ströngustu kröfum og eftir öllum viðeigandi stöðlum.

Myndagallerý

Myndagallerý

Myndagallerý

Myndir af VBS kerfum